Ég held að okkar ágætu ráðamenn verði að sætta sig við orðin hlut
og lýsa einfaldlega yfir þjóðargjaldþroti.
Við verðum að gera okkur grein fyrir einum hlut sem er afskaplega mikilvægur
í málinu.
Við sem búum á þessu skeri erum ekki nema 318.906 hausar.
Ég myndi ekki fyrir minn hlut gráta það að lýsa þessu yfir, í ljósi sögunnar.
allt frá lýðveldisstofnun hefur þetta verið tómt basl hjá okkur, tómt basl.
Nema kannski þegar góðærið var mætti halda, en nú hefur komið í ljós að mestallt
Hættum að rembast við að halda í þjóðarstoltið, það verður bara puð og engum til framdráttar
að reyna að fylla upp í einhverja holu og hún dýptar samt .
Ég myndi heldur ekki gráta það yrðum við bara eitt hérað í Noregi, eða Danmörku.
![]() |
Mikil hækkun skatta í pípunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er með ólíkindum. Ef þú ætlar að reyna að vinna þig út úr kreppunni færðu að finna fyrir því hjá ríkisstjórninni. Kúgunastefnan heldur áfram. Af hverju ekki að setja einhversskonar skattaívilnanir með tillit til námslána inn í kerfið? Þeir sem eru með þokkalegar tekjur 5-700 þús (sem er nú ekki mikið fyrir fólk með íbúð og 2-3 börn) skulda flestir nokkrar millur í námslán. Af hverju er ekki sett ákvæði um að afborgun námslána er frádráttarbær? Það yrði strax skárra. Nei þessi ríkisstjórn vill það ekki. Það eiga allir að vera jafnir, með jafnar tekjur, taka sama strætóinn, búa í sömu blokkinni og ef þú ætlar að mennta þig til að reyna að fá hærri tekjur er OKKUR AÐ MÆTA!!!
nonni (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 09:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.